news

Klappir hlýtur viðurkenningu Grænfánans

30. 09. 2025

Leikskólinn hefur hlotið viðurkenningu Grænfánans fyrir að hafa staðið sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og skýra umhverfisstefnu í skólastarfi.

Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt Grænfánaverkefnið sem helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum. Til að hljóta viðurkenninguna þurfa skólar að vinna markvisst eftir sjö skrefum sem auka umhverfisvitund og stuðla að sjálfbærni í daglegu starfi.

Við fögnuðum þessum áfanga með sameiginlegri athöfn í salnum okkar þar sem tókum á móti fánanum og sungum saman umhverfissáttmála skólans. Þessi viðurkenning er mikiði gleðiefni en jafnframt hvatning til að halda áfram að efla umhverfismennt og sjálfbærni í öllu okkar starfi.

© 2016 - 2026 Karellen