Nýlega lögðu börnin á Lóni lokahönd á verkefni sem miðaði að því að tengja réttindi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna við samskipti, auk þess að efla jafnræði, samkennd og meðvitund um eigin áhrif í samskiptum við aðra. Börnin bjuggu til fallega vinasól þar sem hver geisli sólarinnar endurspeglar hugmyndir þeirra um það hvað góður vinur gerir. Allar deildir leikskólans hafa unnið að sinni eigin vinasól, sem nú prýða veggi skólans.



