Nýlega gaf UNICEF út árangursskýrslu um starf samtakanna á Íslandi.
Í skýrslunni eru dregnar fram þær miklu framfarir sem hafa orðið í menntun og velferð barna í Réttindaskólum og -frístundum á Íslandi. Við á Klöppum erum stolt af því að vera Réttindaskóli, enda höfum við tekið mikilvæg skref til að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttindi barna í allt okkar starf.
Framgangur starfsins hér byggir þó fyrst og fremst á þátttöku barnanna og eldmóði kennara og starfsfólks fyrir réttindum barna.
Skýrsluna má lesa Hér